19.08.1919
Neðri deild: 39. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 1992 í B-deild Alþingistíðinda. (2074)

50. mál, eignaréttur og afnotaréttur fasteigna

Frsm. (Einar Arnórsson):

Við frv. þetta hafa ekki verið gerðar neinar efnisbreytingar aðrar en þær, að námurjettindi og hagnýting vatns og vatnsorku sjeu undanþegin ákvæði laganna. Nefndin hefir fallist á till. 1. þm. G.-K. (B. K ) um þetta atriði.

Brtt. á þgskj. 393, við brtt. á þgskj. 376, er að eins orðabreyting, og væntir nefndin, að hún verði samþ.

Í brtt. hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.), á þgskj. 386, felst ekkert, sem ekki er tekið fram í brtt. nefndarinnar, nema að námurjettindi skulu undanskilin ákvæði laganna eftir till. nefndarinnar.