13.09.1919
Neðri deild: 63. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 559 í C-deild Alþingistíðinda. (3233)

137. mál, skógrækt

Einar Arnórsson:

Jeg vildi beina þeirri fyrirspurn til hæstv. stjórnar, hvort skógræktarstjóri hafi haldið áfram fleytingum eftir að nál. kom út, og ef svo er, þá með hvaða árangri. Eins vildi jeg fá upplýsingar um það, hvort stjórnin hafi tilkynt skógræktarstjóra innihald nál, með skipun um að hegða sjer eftir því.