20.08.1919
Neðri deild: 40. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 931 í C-deild Alþingistíðinda. (3463)

58. mál, útibú Landsbanka Íslands á Vopnafirði

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg man ekki eftir, að slík till. sem þessi hafi nokkurn tíma verið feld hjer á þingi áður. Hins vegar minnist jeg þess, að till. líkar þessari hafa verið samþyktar hjer, enda þótt þær hafi í sjálfu sjer haft litla þýðingu. Jeg fæ ekki skilið, hvers vegna nefndin vill ekki verða við tilmælum hv. 2. þm. N.-M. (Þorst. J.) um að vísa málinu til stjórnarinnar. Bankastjórnin fer auðvitað eftir sínum ástæðum og áliti, hvort sem er, með stofnun útibúa. Því getur maður sagt, að allar þessar áskoranir um stofnun útibúa hafi fremur lítið að segja.