01.09.1919
Efri deild: 45. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 968 í B-deild Alþingistíðinda. (735)

8. mál, mat á saltkjöti til útflutnings

Atvinnumálaráðherra (S. J.):

Þegar frv. þetta var á ferðinni hjer síðast, hafði það ekki verið athugað, að það mundi ekki ná til kauptíðar þeirrar, sem í hönd fer, eins og það var þá orðað, og var þessi breyting því sett inn í hv. Nd., og vona jeg, að hún verði einnig samþ. hjer.