20.04.1921
Efri deild: 48. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 38 í D-deild Alþingistíðinda. (3410)

106. mál, elli og líftryggingar o. fl.

Flm. (Guðmundur Guðfinnsson):

Jeg hefi talað við aðalhöfund brjefsins frá þingmálafundi Eyrarbakka og Stokkseyrar, og þótti honum tillagan ekki vera nógu skýr, sjerstaklega um rannsókn á þeim atriðum, er áhersla er lögð á í brjefinu.

Annars skal jeg ekki fara frekar út í það en í greinargerðinni er gert, af því jeg er, því miður, ekki nógu vel að mjer í þeim atriðum, að jeg þori að skýra það nánar.