28.04.1923
Neðri deild: 52. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 1912 í B-deild Alþingistíðinda. (1802)

9. mál, vatnalög

Hákon Kristófersson:

Þar sem jeg er einn af tillögumönnunum, þá lýsi jeg því yfir sem minni skoðun, að verði nál. skilað til prentunar á mánudag, er það ekki nema að sýna fulla sanngirni gagnvart minni hlutanum að bíða til þriðjudags með að það verði tekið á dagskrá.