22.02.1923
Efri deild: 4. fundur, 35. löggjafarþing.
Sjá dálk 395 í B-deild Alþingistíðinda. (464)

18. mál, varnir gegn kynsjúkdómum

Forsætisráðherra (SE):

Jeg mun svara málaleitun háttv. 4. landsk. þm. (JM ) eftir fáa daga. Annars geri jeg ekki ráð fyrir, að neitt verði því til fyrirstöðu, að stjórnin leggi frv. um lögfylgjur hjónabands fyrir háttv. deild. Um kennarafrv. er það að segja, að jeg afhenti það á síðasta þingi háttv. mentamálanefnd Nd. og veit ekki, hvað um það er orðið síðan, en væntanlega er það geymt einhversstaðar í skjölum þingsins.