17.03.1924
Efri deild: 21. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 1989 í B-deild Alþingistíðinda. (1438)

29. mál, hæstiréttur

Frsm. (Jón Magnússon):

Út af síðustu fyrirspurn hæstv. forsrh. (SE) vil jeg benda honum á, að það er beinlínis lögskipað, hverjir taki sæti í hæstarjetti, ef dómararnir falla frá, og eins og hann mun vita, eru það lögfræðiskennarar háskólans. Verður því að teljast nokkurnveginn trygt, að þau sæti verði altaf nokkurnveginn vel skipuð, þó að sett sje í þau.