25.03.1924
Neðri deild: 32. fundur, 36. löggjafarþing.
Sjá dálk 2382 í B-deild Alþingistíðinda. (58)

Mannaskipti í nefndum

Klemens Jónsson:

Jeg efast um, að flokkurinn hafi nægilegt atkvæðamagn sem stendur hjer í deildinni til slíkrar ákvörðunar, og tel jeg sjálfsagt, að deildin kjósi á nefndirnar. Það stóð eins á í hv. efri deild í gær, og þar var deildin látin skera úr, og slíkt hlýtur að vera sjálfsagt hjer líka.