28.04.1925
Efri deild: 62. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 3035 í B-deild Alþingistíðinda. (1887)

50. mál, tollalög

Fjármálaráðherra (JP):

Jeg hefi heyrt glepsur úr ræðu hv. 5. landsk. (JJ). og alt það, sem hann sagði um málið, hefi jeg heyrt betur sagt í Nd. En þar sem það var alt hrakið þar, finn jeg ekki ástæðu til að endurtaka það hjer, því að það er þýðingarlaust að vera að tvíprenta það í Alþingistíðindunum.

Jeg lít svo á, og hefi fært rök fyrir því, að frv. sje ekki fjárhagsatriði fyrir ríkissjóð. Annað ætla jeg ekki að segja nú.