06.03.1925
Neðri deild: 27. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1033 í C-deild Alþingistíðinda. (2889)

76. mál, bæjargjöld í Reykjavík

Magnús Torfason:

Jeg vil aðeins, út orðum hv. 2. þm. Rang. (KIJ), gefa yfirlýsingu fyrir nefndarinnar hönd. Jeg get sagt frá því, að báðar allshn. hafa gengið á fund og athugað málið nokkuð, og var allshn. Nd. falið að athuga nánar og undirbúa þingsályktun, einmitt þess efnis, að sett væri milliþinganefnd í málið.