21.02.1925
Neðri deild: 13. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í D-deild Alþingistíðinda. (3062)

36. mál, Danir krafðir um forngripi

Forsætisráðherra (JM):

Það er sjálfsagt, að stjórnin láti rannsaka þetta mál. það hefir annars komið til orða hjá lögjafnaðarnefndinni, og vona jeg, að stjórnin geti haft aðstoð hennar í málinu. Finn ekki ástæðu til að fara frekar út í þetta að svo komnu.