24.02.1925
Neðri deild: 15. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1198 í B-deild Alþingistíðinda. (444)

31. mál, sektir

Forsætisráðherra (JM):

Jeg get verið hv. allshn. þakklátur fyrir meðferð hennar á frv., og mun jeg ekki leggjast á móti brtt. hennar, þó að jeg á hinn bóginn sje ekki sannfærður um, að hún sje nauðsynleg.