01.05.1925
Neðri deild: 69. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1581 í B-deild Alþingistíðinda. (788)

75. mál, dócentsembætti við heimspekideild

Frsm. meiri hl. (Björn líndal):

Jeg geri ekki ráð fyrir, að það muni þurfa langa framsöguræðu í þessu máli. Það er gamalkunnugt hjer á Alþingi, og gerð er líka allítarleg grein fyrir því í greinargerð frv. og nál. Jeg er ekki fagmaður í þessu máli og veit, að háttv. þm. Dala. (BJ) hefir miklu meiri þekking á því en jeg. Ætla jeg honum því að taka nú við af mjer og færa rök fyrir málinu, betri en jeg er fær um að gera.