11.05.1925
Neðri deild: 77. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1739 í B-deild Alþingistíðinda. (952)

30. mál, laun embættismanna

Björn Líndal:

Jeg er óánægður við hv. Ed. út af því, að hún hefir ekki bætt úr því, sem meiri hl. fjhn. mistókst hjer í þessari deild, að koma inn í frv. ákvæðum um að bæta kjör þeirra, sem lægst eru launaðir. Aftur hefir hún bætt nokkuð úr með því að mæla með því, að tekin verði upp í fjárlögin fjárveiting, sem verja á í sama skyni, og af þeirri ástæðu get jeg eftir atvikum sætt mig við frv. óbreytt, þó að mjer þyki það meingallað að þessu leyti.