19.02.1926
Neðri deild: 10. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í C-deild Alþingistíðinda. (1929)

27. mál, verslunarbækur

Flm. (Halldór Stefánsson):

Ástæðurnar fyrir þessu frv. eru teknar fram í greinargerðinni, og sje jeg ekki ástæðu til, á þessu stigi málsins, að endurtaka þær eða bæta neinu við það, sem þar er sagt. Jeg vænti þess, að málið fái að ganga til 2. umr., og legg til, að því verði vísað til allshn. að lokinni þessari umr.