16.03.1926
Efri deild: 29. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í D-deild Alþingistíðinda. (2762)

47. mál, ríkisborgararéttur

Sigurður Eggerz:

Jeg vildi aðeins taka það fram, að jeg tel alveg víst, að allir verði sammála um að taka þessar sjálfsögðu kröfur til greina. Hjer er aðeins um að ræða gamlar leifar af misrjetti, sem sjálfsagt er að falli burtu. Jeg tel alveg víst, að engin rödd heyrist á móti þessum væntanlegu breytingum.