18.03.1926
Efri deild: 31. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 957 í B-deild Alþingistíðinda. (474)

9. mál, veitingasala, gistihúshald o. fl.

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg hefi ekkert að athuga við þær brtt. hv. nefndar, sem hjer liggja fyrir, en jeg vil segja hv. frsm. það, að jeg tel engan vafa á, að orðið „,eða“ fyrir „og“ er prentvilla, og finst mjer hann ekki hafa ástæðu til að gera veður út af því nje hallmæla yfirleitt orðalagi á stjfrv.