03.05.1927
Efri deild: 64. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 1477 í B-deild Alþingistíðinda. (1212)

21. mál, fjárlög 1928

Atv.- og dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Jeg hefi ekkert um það sagt, hvernig jeg muni ráðstafa þessari upphæð. Jeg var aðeins að fiska eftir því í gær að fá eitthvað ákveðið um það frá hv. fjvn., hvort hún ætlaðist til þess, að fjárveiting þessi yrði notuð í ár, en nú sýnist mjer svo sem nefndin vilji ekki gefa neina yfirlýsingu í þá átt.