18.03.1927
Neðri deild: 33. fundur, 39. löggjafarþing.
Sjá dálk 2611 í B-deild Alþingistíðinda. (1889)

23. mál, járnbrautarlagning og virkjun Urriðafoss

Forseti (BSv):

Að gefnu tilefni vil jeg taka það fram, að þessi stutta aths. varð nú alt of löng. En hinsvegar má ef til vill líta svo á, að hv. þm. (JakM) hafi haft nokkurskonar frsm. aðstöðu í þessu máli. (KIJ: Nei, hann var hvorki frsm. nje flytjandi brtt. Þetta er ekkert annað en misbrúkun á þingtímanum). Það vil jeg nú ekki segja. Það er að minsta kosti ekki misbrúkun á þingtímanum að rökræða mál. En sem sagt, þessi aths. var alt of löng, og svo langar aths. verða ekki leyfðar hjer eftir.