04.05.1929
Neðri deild: 61. fundur, 41. löggjafarþing.
Sjá dálk 3407 í B-deild Alþingistíðinda. (2122)

37. mál, verkamannabústaðir

Magnús Jónsson:

Það er ekki venjulegt að bóka það, að till. sjeu teknar aftur, fyrri en komið er að atkvgr. og úrslitum dagskrármála. Jeg held, að ekkert atriði líkt þessu hafi orðið hjer til ágreinings fyrr. — Annars ber jeg ekki ábyrgð á því, hvernig gengið er frá bókun fundargerða, heldur hæstv. forseti.