14.04.1930
Neðri deild: 81. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 899 í C-deild Alþingistíðinda. (1551)

338. mál, gelding hesta og nauta

Forseti (BSv):

Mér hafa borizt tvær skrifl. brtt. við frv. Önnur er frá hv. 1. þm. Árn., svo hljóðandi:

„Við 4. gr. Greinina skal orða svo:

Lög þessi ganga í gildi 1. jan. 1932“.

Hin er frá hv. 1. þm. Skagf., svo látandi :

„Fyrirsögn frv. verði: Frv. til l. um geldingu hesta og nauta“.

Mun ég leita afbrigða fyrir þær báðar í einu.