09.04.1930
Neðri deild: 75. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1373 í B-deild Alþingistíðinda. (1826)

11. mál, yfirsetukvennalög

Forseti (BSv):

Fyrst þegar þetta mál var hér til umr., voru aðeins haldnar hér ræður, sem einhverju máli skiptu, en síðan fækkaði svo í deildinni, að um tíma voru þar aðeins 5 menn. Það er því varla von, að menn viti, hvaða mál er hér á dagskrá: Ég vil því, þessum mönnum til leiðbeiningar, taka það fram, að hér eru til umr. breytingar á yfirsetukvennalögum, nr. 14, 22. okt. 1912.