09.04.1930
Neðri deild: 75. fundur, 42. löggjafarþing.
Sjá dálk 1374 í B-deild Alþingistíðinda. (1828)

11. mál, yfirsetukvennalög

Forseti (BSv.):

Málið hlýtur að vera orðið þrautrætt, þar sem menn eru fyrir löngu hættir að koma nálægt því. Finnst mér, að menn hafi nú þegar fengið að skemmta sér nóg við annað, og tel vænlegast, að atkvgr. fari fram.