23.02.1931
Neðri deild: 7. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 387 í C-deild Alþingistíðinda. (799)

18. mál, samgöngubætur og fyrirhleðslur á vatnasvæði Þverár og Markarfljóts

Gunnar Sigurðsson [óyfirl.]:

Ég vil benda hv. þm. á það, að þingið getur ákveðið hvenær sem er að láta byrja á þessu verki. Ég get sætt mig við það að óreyndu máli, að hæstv. atvmrh. hefir tekið það skýrt fram í síðustu ræðu sinni, að hann myndi gera þetta mál að sínu máli. Get ég gert mig ánægðan með það að svo stöddu, en vildi aðeins taka það fram, að þingið getur ákveðið, hvenær byrjað skuli á verkinu.