23.07.1931
Neðri deild: 10. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 1226 í B-deild Alþingistíðinda. (1976)

61. mál, hafnargerð á Dalvík

Flm. (Bernharð Stefánsson):

Eins og menn munu kannast við, hefir þetta mál legið fyrir tveimur undanförnum þingum, og í bæði skiptin verið samþ. hér í þessari hv. d., en hinsvegar ekki náð afgreiðslu í Ed.

Þótt hér séu nú allmargir nýir þm., sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta frv., en vona, að það fái að verða samferða öðrum hafnarfrv., sem nú liggja fyrir. Að endingu legg ég til, að því verði vísað til sjútvn.