19.08.1931
Efri deild: 33. fundur, 44. löggjafarþing.
Sjá dálk 584 í B-deild Alþingistíðinda. (287)

1. mál, fjárlög 1932

Jón Þorláksson:

Mér hefir skilizt, að sú venja hafi ríkt hér á hv. Alþ., þótt um brtt. væri að ræða, að hærri upphæðin sé borin upp fyrst. Annars skilst mér, að hér sé ekki um neina brtt. að ræða, þótt hún sé orðuð svo í fyrirsögn, því að till. eru efnislega alveg óskyldar.