03.06.1932
Efri deild: 93. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2366 í B-deild Alþingistíðinda. (2735)

824. mál, tekju- og eignarskattsauki

2735Jón Þorláksson:

Ég vil aðeins skýra frá, að til þess að greiða fyrir þessu máli, leyfði ég, að fjhn. tæki það til flutnings. Þótt ég hefði ekki séð frv., aðeins verið gerð grein fyrir efni þess í aðalatriðum. Þess vegna hefði ég getað kosið lítilsháttar breyt. á búningi frv. frá því, sem nú er, en sé þó ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um það við þessa umr.