04.06.1932
Neðri deild: 93. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 2373 í B-deild Alþingistíðinda. (2771)

826. mál, lán til skipaviðgerðarstöðvar í Reykjavík

Flm. (Einar Arnórsson):

Mér þykir ekki nema eðlilegt, að hæstv. ráðh. taki þessa afstöðu til málsins, og það er fjarri mér að setja mig á móti því, að málið sé athugað í n. á þann hátt, sem hæstv. ráðh. hefir farið fram á. Mér skilst, að þessi athugun geti farið fram í dag, á milli umr.