22.04.1932
Neðri deild: 57. fundur, 45. löggjafarþing.
Sjá dálk 1104 í B-deild Alþingistíðinda. (726)

10. mál, Brunabótafélag Íslands

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Það mætti að vísu líta svo út fyrir þá, er síðar athuga þetta mál, ef brtt. verður felld, að deildin sé ekki sammála um það, sem í henni felst. Ég er alveg sammála hv. 1. þm. N.-M. um þau, að brtt. sé óþörf. En þó að ég greiði atkv. gegn henni, þá felst ekki í hví, að ég sé brtt. efnislega mótfallinn, heldur það eitt, að ég álit hana óþarfa.