01.03.1933
Neðri deild: 13. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 378 í D-deild Alþingistíðinda. (2525)

50. mál, styrk handa lækni til að nema lyfjafræði

Dómsmrh. (Magnús Guðmundsson):

Ég held, að það sé eðlilegast að fara að eins og hv . þm. Str. leggur til, að vísa þessu máli til fjvn., því að hér er um beina fjárveitingu að ræða, og þess vegna væri eðlilegast, þegar einhverjir þm. vildu koma fram með svona fjárveitingu, að það kæmi fram sem till. við fjárl. Það er mjög óheppilegt, að það komi fram till. um miklar fjárveitingar í þál. Ég vildi beina þeirri ósk til hv. flm., að hann samþ., að þessu máli verði vísað til fjvn.