19.04.1933
Neðri deild: 53. fundur, 46. löggjafarþing.
Sjá dálk 551 í C-deild Alþingistíðinda. (4691)

134. mál, jarðræktalög

Flm. (Bjarni Ásgeirsson):

Ég ætla ekki að tala langt mál um þetta; það er búið að ræða þetta svo rækilega á undanförnum þingum, að mér virðist óþarfi að ræða það nú. Ég mælist aðeins til, að málinu verði vísað til 2. umr., en tel óþarft að láta það fara í nefnd.