02.12.1933
Neðri deild: 24. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 242 í D-deild Alþingistíðinda. (1655)

48. mál, samvinnufélagið

Bjarni Ásgeirsson:

Ég ætla ekki að halda hér langan fyrirlestur við þessa umr. málsins, en vil aðeins geta þess, að mér þykir það koma úr hörðustu átt að hv. þm. A.-Húnv., sem ekki klígjar við að biðja um mörg hundruð þús. kr. framlög og ábyrgð fyrir sitt kjördæmi úr ríkissjóði, skuli ætla að springa af vandlætingu út af þessari 125 þús. kr. ábyrgðarheimild til nauðsynjafyrirtækis, sem ekki er sjáanlegt, að hafi neina áhættu í för með sér fyrir ríkissjóð.