08.12.1933
Neðri deild: 32. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 278 í D-deild Alþingistíðinda. (1817)

102. mál, samgöngur við Austfirði

Flm. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl.]:

Till., shlj. þessari. var samþ. á síðastl. þingi, en hefir ekki borið verulegan árangur, og því flytjum við austanþm. nú þessa till. Ferðir til og frá Austfjörðum eru fáar; í ár áætlar Eimskipafélagið 10 ferðir til og 9 frá, þ. e. a. s. 91/2 ferð fram og aftur. Þegar þess er gætt, að Eimskipafélagið fær 250 þús. kr. styrk úr ríkissjóði. Þá tel ég Alþ. skylt að sjá um, að einstakir landshlutar verði ekki eins afskiptir og þarna á sér stað.