30.11.1933
Efri deild: 23. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 220 í B-deild Alþingistíðinda. (193)

2. mál, kosningar til Alþingis

Jón Jónsson:

Ég vil bara andmæla tali hv. frsm. um það, að hér sé um þingsvik að ræða. Það var margtekið fram í fyrra, að þessu atriði mætti breyta með kosningal., og því mótmælti enginn þá. Þá hefir það verið sagt, að stjskr. hefði ekki náð samþykki með þessu ákvæði. En ég er á því, að nái frv. samþykki d. nú, þá hefði hún einnig samþ. stjskr.breyt., þar sem þetta atriði væri upp tekið.