10.11.1933
Neðri deild: 6. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í B-deild Alþingistíðinda. (413)

9. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða

Héðinn Valdimarsson:

Ég er samþykkur því frv., sem hér liggur fyrir, og vildi aðeins geta þess, að það gleður mig mjög, að íhaldsmenn eru farnir að sjá svo að sér sem þetta frv. ber vott um, að þeir eru sjálfir farnir að leiðrétta þær villur, sem þeir hafa komið inn í löggjöfina.