08.12.1933
Sameinað þing: 12. fundur, 47. löggjafarþing.
Sjá dálk 556 í B-deild Alþingistíðinda. (54)

Afgreiðsla þingmála

Forseti (JBald):

Út af ummælum hv. 1. þm. Reykv. vil ég vekja athygli á því, að ekki var farið fram á, að málið yrði fyrsta mál, heldur að það væri sett á dagskrá „hið fyrsta“, og þar til nefndur laugardagur 2. des., og að ekki var í áskoruninni vitnað til þingskapa. Ég hefi ekki hleypt neinu máli fram fyrir það, nema smámálum, að mestu leyti umr.lausum, eins og kosningum nefnda og slíku.