13.12.1934
Neðri deild: 58. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1455 í B-deild Alþingistíðinda. (1256)

29. mál, markaðs- og verðjöfnunarsjóður

Hannes Jónsson:

Ég vil til frekari áherzlu á samþ. brtt. minnar við 3. gr. benda á, að eins og sú gr. hljóðar nú, er engin trygging fyrir því, að n. verði fullskipuð, og má það ekki góðri lukku stýra. Það kemur ekki til mála, að hægt sé að þvinga stjórnmálaflokka til að tilnefna menn í n., sem þeir engin afskipti vilja hafa af.