08.12.1934
Neðri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1175 í B-deild Alþingistíðinda. (1561)

19. mál, varnir gegn því að verða barnshafandi og fóstureyðingar

Frsm. (Héðinn Valdimarsson):

Ég sé ekki ástæðu til þess að fara að vísa þessu máli til n. þeirrar, sem frv. er fram borið af. Á því hafa engar breyt. verið gerðar í Ed., sem skipta máli, og hér liggja engar brtt. við frv. fyrir.