11.12.1934
Neðri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2706 í B-deild Alþingistíðinda. (3828)

161. mál, síldarútvegsnefnd

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Hæstv. atvmrh., sem hefir aðallega með þetta mál að gera, er ekki viðstaddur, en ég veit, að honum er áhugamál, að málið nái fram að ganga. Það á eftir að fara gegnum fjórar umr., en stutt eftir þingtímans. Er hætta á, ef því er frestað, að það komist e. t. v. ekki áfram, og vil ég því mælast til, að umr. verði haldið áfram.