10.11.1934
Neðri deild: 33. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í C-deild Alþingistíðinda. (4088)

50. mál, ráðstafanir vegna fjárkreppunnar

Forseti (JörB):

Mér virðist á svörum hv. form. landbn., að hann vilji gjarnan greiða fyrir afgreiðslu þessu máls. Ég vil skilja hann svo, að n. sé að vinna að málinu, ásamt fleiri samskonar málum, og meiningin sé að afgreiða það svo fljótt, sem hægt er. Ég fyrir mitt leyti óska eftir, að hv. n. sinni málinu og afgreiði það, og ég get heitið hv. flm. því, að ég mun gefa því gætur, hvort afgreiðsla málsins dregst mjög úr þessu. (HannJ: Hún er nú þegar búin að dragast lengi).