10.10.1934
Efri deild: 7. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 500 í B-deild Alþingistíðinda. (445)

25. mál, síldarbræðsluverksmiðja á Norðurlandi

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Þegar leitað var eftir lántöku til síldarbræðslustöðvar á Norðurlandi, kom í ljós, að breyta þurfti örlítið einni gr., þar sem lánsheimildin er miðuð aðeins við ísl. kr. Eina breytingin við gr. er þá í því fólgin, að upphæðin er jafnframt tilgreind í sterlingspundum.