17.12.1934
Neðri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í D-deild Alþingistíðinda. (5086)

86. mál, Vestmannaeyjavitinn á Stórhöfða

Bjarni Bjarnason:

Ég vil gera grein fyrir mínu atkv. Ég efast ekkert um nauðsyn þessa máls, sem hér er til umr., en þar sem það fé, sem ætlað er á næsta ári til vitabygginga, hrekkur hvergi nærri til þess að bæta úr brýnustu nauðsyn í þessu efni, og þar sem till. um aukningu á ljósmagni Stórhöfðavita var tekin til meðferðar í fjvn., en synjað var um fjárútlátin af áðurgreindum ástæðum, verð ég að greiða atkv. gegn till., þeirri, er hér liggur fyrir.