15.02.1935
Neðri deild: 1. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2453 í B-deild Alþingistíðinda. (197)

Starfsmenn þingsins

Forseti (JörB):

Eins og hv. þm. Snæf. er kunnugt, ráða forsetarnir þrír allir í sameiningu starfsmannavali fyrir þingið. Allmargir þeirra, sem verið hafa hér dyraverðir að undanförnu, eru nokkuð við aldur, langt yfir það aldurshámark, sem nú var nefnt í sambandi við ráðningu dyravarða, og hefir dálítið brytt á því, að hv. þm. hefir þótt val manna til dyravörzlu ekki vera eins og það ætti að vera. Nú höfum við ekki átt tal um þetta efni forsetarnir, sem kosnir vorum í dag, og get ég því engu um það svarað, svo að fullvíst megi telja, hver úrslit verða af forseta hálfu. En það atriði, sem hv. þm. Snæf. vék að, verður tekið til ýtarlegrar athugunar áður en nokkur ráðstöfun verður gerð um aðra skipun þessa máls en verið hefir.