21.04.1936
Neðri deild: 53. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 1411 í B-deild Alþingistíðinda. (2004)

34. mál, atvinna við siglingar

Frsm. (Páll Þorbjörnsson):

Ég get ekki séð, að það sé ástæða til þess að fresta að taka málið til umr. núna. Þetta er annað þingið, sem það hefir verið borið fram á, og það er núna búið að ganga í gegnum hv. Ed., og þar sem þetta er 2. umr. málsins í þessari hv. d., þá er hægt að bera fram brtt. til 3. umr., ef menn vilja gera einhverja breyt. á málinu.