22.02.1936
Efri deild: 6. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 347 í B-deild Alþingistíðinda. (223)

3. mál, bráðabirgðatekjuöflun til ríkissjóðs

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Þetta frv. er borið fram samkv. 23. gr. stjórnarskrárinnar, því það var gefið út sem bráðabirgðalög 24. jan. þetta ár. Efnið er aðeins leiðrétting á l. frá 31. des. f. á., um bráðbirgðatekjuöflun til ríkissjóðs, því þegar þau lög voru útbúin, hafði fallið niður ein setning úr 2. gr. l.Fjhn. hefir athugað þetta frv., og eins og sést á nál. á þskj. 24, leggur hún einróma til, að það verði samþ.