25.02.1937
Neðri deild: 9. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 275 í C-deild Alþingistíðinda. (1504)

28. mál, viðgerðir á skipum

*Flm. (Páll Þorbjörnsson):

Ég get verið stuttorður um þetta frv. Það var borið fram á síðasta þingi, en náði þá ekki fram að ganga. Fylgdi því þá ýtarleg grg., og er vísað til hennar nú.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um frv. á þessu stigi málsins, en get aðeins vísað til grg. frv. og þeirra umr., sem þá fóru fram um það. Vil ég óska eftir, að frv. verði vísað til 2. umr. og til inn.