16.04.1937
Neðri deild: 40. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 682 í C-deild Alþingistíðinda. (1960)

109. mál, viðreisn sjávarútvegsins

*Sigurður Kristjánsson:

Ég leyfi mér að segja hér nokkur orð utan dagskrár. Við þessar umr. hefir Ásgeir Ásgeirsson talað fyrir málstað Alþfl. Þessi hv. þm. telur sig vera utan flokka, en vitað er, að hann fylgir jafnaðarmönnum að málum, og álít ég því, að með því sé lengdur tíminn, sem sá flokkur hefir við þessar umr. Ég vil því spyrja hæstv. forseta, fyrir hönd hvaða flokks hann hefir talað.