16.04.1937
Neðri deild: 40. fundur, 51. löggjafarþing.
Sjá dálk 683 í C-deild Alþingistíðinda. (1963)

109. mál, viðreisn sjávarútvegsins

Forseti (JörB):

Ég vil upplýsa það í þessu sambandi, að hv. þm. V.-Ísf. (ÁÁ) hefir talað hér af hálfu utanflokksmanna. Og samkv. þingsköpum hefir hann rétt til að tala helmingi minni tíma en flokkarnir, og ég vil geta þess, að hann hefir ekki notað sér þennan rétt sinn að fullu.