20.12.1937
Sameinað þing: 17. fundur, 52. löggjafarþing.
Sjá dálk 161 í B-deild Alþingistíðinda. (101)

1. mál, fjárlög 1938

Bjarni Ásgeirsson:

Ég vil vekja athygli á því, að það er vafasamt, hvort næsta brtt. (450) getur komizt að, því að hún er borin fram sem leiðrétting á brtt. minni, en er um það, að feðra upp manninn, sem um er að ræða. Ég sé ekki, að það sé á færi Alþingis að gera slíkt.